Loka

Skráðu inn notendaupplýsingar þínar hér til að komast inn í  BIS


Notendanafn Lykilorð
Meðlimir

Flýtileiðir


Næstu námskeið

Boot Camp trailer


 

Íslandsmetin í róðri slegin!

Um helgina hélt Boot Camp róðrakeppni þar sem margir bestu ræðarar Boot Camp tóku fram árar sínar. Þó ekki bókstaflega þar sem keppt var á hefðbundnum Concept2 róðravélum. Keppnisflokkarnir voru 500m og 2000m í karla- og kvennaflokki og 1000m parakeppni.

Það voru margir ótrúlegir tímar sem litu dagsins ljós og sem dæmi má nefna að sigurtíminn í 500m karla frá því í fyrra hefði eingöngu skilað viðkomandi 6. sætið núna!

Hérna eru topp tímarnir úr hverjum keppnisflokki fyrir sig:

500m karla
1. Gísli V. Gunnarsson - 01:19.1
2. Steinar Sigurðarson - 01:20.6
3. Guðmundur Guðmundsson - 01:20.9
4. Elvar Þór Karlsson - 01:21.00
5-6. Jóhannes Guðmundsson - 01:21.8 (þrátt fyrir að detta af sætinu í vélinni!)
5-6. Sveinbjörn Sveinbjörnsson - 01:21.8

500m kvenna
1. Annie Mist Þórisdóttir - 01:34.2
2. Ásdís Eva Lárusdóttir - 01:39.6
3. María Ögn Guðmundsdóttir - 01:39.8
4. Guðrún Lovísa Ólafsdóttir - 01:41.6
5. Ásta Ósk Stefánsdóttir - 01:44.4

2000m karla
1. Elvar Þór Karlsson - 06:24.9
2. Torben Gregersen - 06:25.00
3. Guðmundur Guðmundsson - 06:28.3
4. Gísli V. Gunnarsson - 06:32.6
5. Freyr Hákonarson - 06:33.9

2000m kvenna
1. Annie Mist Þórisdóttir - 07:24.2
2. Ásdís Eva Lárusdóttir - 07:48.5 (hafði aldrei róið lengra en 500m áður!)
3. Guðrún Lovísa Ólafsdóttir - 07:52.6
4. Kristín Björg Ólafsdóttir - 08:12.6

1000m parakeppni
1. Steinn og María - 03:16.1
2. Stefán og Arna - 03:16.5
3. Torben og Steffi - 03:22.4
4. Steinar og Fanney - 03:23.9 (eru par í raun!)
5. Vísir og Ragna - 03:27.7

Frábær árangur hjá frábærum keppendum! Til lukku öllsömul og þátttakan verður eflaust enn betri næst þar sem þessi blessaði róður er smitandi, eins ógeðslegur og hann er samt! Myndir væntanlegar á næstu dögum.